Staðhættir

Staðhættir Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er vestast á Snæfellsnesi og flatarmál hans er um 170 km2. Að sunnan liggja mörk hans um austurjaðar Háahrauns í landi Dagverðarár og að norðan á austurmörkum Gufuskálalands.

Jökulhetta Snæfellsjökuls er innan þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn hefur þá sérstöðu meðal íslenskra þjóðgarða að vera sá eini sem nær í sjó fram. Ströndin er fjölbreytileg þar sem skiptast á vogar með grýttum eða sendnum ströndum og snarbrattir sjávarhamrar með iðandi fuglalífi um varptímann.

Láglendið er að mestu hraun sem runnið hafa frá Snæfellsjökli eða eldvörpum á láglendi. Hraunin eru víðast þakin mosa en inn á milli má finna fallega, skjólsæla bolla með gróskumiklum gróðri. Snæfellsjökull gnæfir tignarlegur yfir umhverfinu og greinilega má sjá hvernig hraunstraumar og hraunfossar hafa runnið niður eftir hlíðum hans. Undirfjöll hans eru margbreytileg að lögun, svo sem Hreggnasi, Geldingafell og Svörtutindar.

Eysteinsdalur gengur upp frá láglendinu. Þar er komið í annað landslag, dal girtan fjöllum sem kalla á göngufúsa fætur.